Jæja, hér hefur mikið gengið síðustu daga.... Ásdís hefur
náttlega engann tíma í blogg því að hún þarf stærðfræði 203 takk
fyrir kærlega!!!!
Störtum þessu á miðvikudeginum seinasta.....
Ég mætti í skólan í pylsi og fíneríi og fór í fyrstu tvo tímana
og svo í munnlegt próf í þýsku... gekk ágætleeeega, en svo hrindi
ég í diddu mína og hún náði í mig þar sem hún hafði komið með
fyrstu flugvél norður ásamt Erlu frænku. Við fórum heim þar sem
allt var í fullum gangi, verið að klára að pakka niður og gera allt
til...svo var bara brunað í Ólafsfjörð og ég með mína frékju náði
ég SAMT baaara að fá að keyra frá Dalvík til Ólafsfjarðar því hin
gribban var mætt á svæðið takk fyrir!!! En þetta þíddi líka að ég
þurfti að hlaupa í framsætið leið og hún hljóp út í nokkrar sek

Svo sat hún beint fyrir aftan mig og öskraði af hræðslu...
Jónína EKKI KLESSA Á GÖNGIN!!!!! haha!! jú linda ég ætla að bruna
bara beint í vegginn!!!
En allavega.... áfangastaðurinn var Hornbrekka þar sem hann Afi
minn Beggi og látna amma mín K. voru. Þetta var svolítið erfitt og
nokkur tár mættu á svæðið þar sem við fengum að sjá hana elsku ömmu
mína. Svo var kistulaggning og men hún var erfið :/ En svo
var haldin svona kveðjustund uppi og þar var prestur sem hélt litla
ræðu og svo söng ég Í bljúgri bæn og Beggi bróðir spilaði
á gítar, þetta gekk ágætlega en var erfitt.
Þegar þessu var lokið og búið að koma ömmu út í bíl með afa og
pabba var brunað til Reykjavíkur, Linda frekja fékk bílstjórasætið
en ég fékk bara mikinn svefn í staðinn
Tókum reyndar smá
stopp á Dalvík fyrst en svo var bara keyrt í staðarskála og þar
fékk maður sé að snæða... en svo var keyrt áfram og mikil áhersla
var á því að Linda væri FYRST!!! ekki síðust aftur... hahh!! Linda
ég er ekki komin hálf út úr bílnum og þú ert farin af stað!!!
haha!! góður!!... Já þetta var skondin og skemmtileg ferð, ég,
mamma, Linda og Erla vorum sko allar fjórar í bíl og það var mikið
ruglað og það var náttúrlega aaaals ekkert verra að vita af því að
hún Helga mákona lá upp á sjúkrahúsi í Reykjavík og var í fæðingu,
maður var laveg á NIPPINU þarna (já ásdís NIPPINU) svo þurfti
reyndar greiið að fara í keisara :/ En það reddaðist allt og það
fæddist alveg ofboðslega fallegur og rauðhærður strákur þann 16.
maí
ohh mamma var líka svo orðheppin þessa ferð, það kom allt
svo vitlaust út úr henni, það var alveg indislegt :** híhí... og
systir mín náttúrlega svaka bílstjóri í Reykjvíkinni...svona
sérstaklega þar sem hún býr nú þar og hefur búið þar í mörg ár að
þá tókst henni bara samt að villast þar!
Vó ég veit reyndar ekki hvort þið bottnið EITTHVAÐ í þessu
bloggi... en mér er sama hehe... er bara að buna þessu öllu saman
út úr mér
GO ON....
Ekki reyndar mikið meir að segja frá þessum degi, það var bara
eitthvað dúllað og farið svo að sofa....
Fimttudagurinn...Lærdómur og verslanir 
híhí.....
Föstudagurinn... Vaknaði snemma og skrapp aðeins.... og svo var
farið upp á Silfó og farið í fínu fötin... Beint upp í
Langholtskirkju þar sem að hún amma mín var jarðsungin. Þetta var
alveg ótrúlega falleg athöfn og þar fundust nú líka einhver tár
Þar söng ég líka með tárin í augunum, Í bljúgri bæn með
Begga á gítar. En já þetta var svo fallegt en sárt. Svo
var farið í kirkjugarðinn og svo var erfidrykkja, maður var
svolítið búinn og þurfti að dreifa huganum svolítið... og við Diddý
áttum ekki í erfileikum með það í BÚÐUM!! komumst í heilar 3 búðir
á rúmlega 2 tímum 
Um kvöldið var svo smá hittingur upp í
Tjarnaseli 

Laugardagur: Sofið út? Lært....smá búðir... IKEA!!!!!! Shæsneh..
Svo var hjúts matarboð upp í Tjarnaseli þar sem þau Helgi, Hanna,
Vala, Matthias, Olivia og Beggi komu öll frá Svíþjóð í jarðaför
ákváðum við ÖLL að hittas og borða saman... vorum 18 við
matarborðið
Þetta var rosa gaman... og svo var eitthvað talað
fram á kvöld og lært...haha, já hann Beggi(Björgvin) frændi
hjálpaði mér með enskuna... takk:**
En svo var bara sofnað yfir
Friends 
Sunnudagur: hmm... SOFIÐ! svo var allt í einu bara rifin af mér
sængin og ég fékk í feisið "hey þú... á fætur NÚNA pakka niður og
niðrá Silfó NÚNA!!!" Þannig að ég pakkaði niður bókstaflega
sofandi!! enda þurftum við að snúa við einu sinni
hehe.... Niðrá
Silvó voru þau Helga og Binni með litla sæda 
og svo var Andý
líka og fullt af pípúli
hehe... en annars var svo bara klárað að
gera sig til og keyrt heim...
Þannig að þetta já var mjög stór vika þarna... þetta var alveg
svona... manneskja dó og önnur kom í staðin
Kem með ljóðið hérna
við gott tækifæri sem var samið um þennan dag. 
En núna eru bara prófin að byrja hjá mér... fyrsta prófið á
föstudaginn sem er DANSKA!! en svo fer ég austur í Egilsstaði um
helgina
læra stærðfræði hjá meme
hehe....
En þetta er bara svo mikið RUGL blogg að ég efast um að ein
manneskja botni nokkuð í því... en samt sem áður BLOGG!!! 
já btw... komin með nýtt msn: joninan90@hotmail.com - addiðið
mér inn ef þið þekkið mig 